<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, desember 15, 2004

Ich kann nichts dafür....... aber ich kann mich nicht daran erinnen !!
Áðan var ég að labba, ég flæktist í tvinna og ég féll, ég féll niður tvo stiga svo vaknaði ég og ég skildi ekki neitt......
Lítum aðeins á aðstæður þó ekki nema væri nokkrum mínútum fyrir flækinguna og fallið. Úti var stóhríð, í Reykjavík var allt á kafi og enginn gat gert neitt annað en að vera heima hjá sér (og læra að þekkja á sér handarbakið, til þess að geta notað orðatiltækið :,,ég þekki þetta betur en handarbakið á mér" til þess að þa tákni að marh þekki eikkað vel en hafi ekki einmitt öfuga merkingu þar sem enginn venjulegur maður þekkir handarbakið sitt eikkað sérstaklega vel) Allir í rvk voru sem sé uppteknir og nýjum vistmönnnum á kleppi hafði fjölgað um heil 73% á einungis tæpum tveimur vikum vegna þess hve margir brjáuluðust á mikilli inniveru og og einnar og hálfrar stundar heilaþrælkun á dag þar sem hver og einn hefur aðeins eitt borð, einn stól og jahh ok jafnmarga blýanta og sá hinn sami vill. Og ekki vantaði að úti sem inni var nístandi kuldi.....
En ef við förum nú lengra fram í tímann og komum að þeirri stundu er ég er að ranka við mér. Það sem ég sé er...jahh fullt af glöðu fólki og enga hríð og ekki einn einasta vistmann á kleppi (enda kleppur ekki í augsýn og þó svo hefi verið hefði ég tæplega séð í gegnum veggi hússins....)Eftir nokkur andartök (ein þrjú ef ég man rétt) varð mér ljóst að þa sem mér hafði sýnst vera stórhríð og volæði var bara þoka í mínum eigin huga og fólk sat ekki heima og kynntist handarbakinu sínu heldur lagði stund á menntalegfræði og heilaþrælkunin var ekki annað en próf (Þó tilraunastarfsemi í boði Hitlers nokkurs hafi virst vera þar á ferð á tímabili) en skyndilega var allt þetta yfirstaðið með einni byltu og bingó allllir glaðir!
_____________________________________________________________________________________
Svo sonna til að bæta góðan dag vildi svo skemmtilega til að áðan komu heim til mín tveir sætir flutningspiltar. Verð ég að segja að þa var ekkert smáræðis skemmtilegt að fylgjast með þeim. Þeir voru eikkað svo einstaklega truflaðir og sætir þetta var gleðileg upplifun

Comments:

Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?