<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, nóvember 25, 2004

Stúlka af Íslensku kyni af ótilgreindri stærð hlammað sér hreinlega svo hressilega í bíósæti að þa gaf sig. Það hafði þó ekkert hamlandi áhrif á stúlkuna sem hélt ferð sinni áfram og nú á enn meiri hraða vegna stöðugleika þyngdaraflsins, hún endaði förina með miklum skelli á gólfi bíósalarsins. Að lendingu lokinni var ekki margt annað að gera en að standa upp hið snarasta. Hin Íslensk ættaða stúlka gerði sér grein fyrir þeirri staðreynd og rauk upp á einu augabragði. Sömu sögu var hins vegar ekki að segja um hið útvalda sæti því ólíkt öðrum bíósætum sem grípa hvert tækifæri til að slá mann í rassinn lá þa sem fastast og þar að auki í henglum á gólfinu. Þetta var að öllum líkindum ekki alleg þa sem stúlkan hafði ætlaði sér, en einmitt þetta bjargaði bíóferð margra, svo megi stúlkan ágætlega lifa...

Comments:

Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?