<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, september 01, 2004

Beause!!
Skólinn bara byrjaður og allt í gleði ?
Já að sjálfsögðu!
Sem minnir mig á þa, þið skulið hugsa ykkur vel um áður en þið notið þetta orð næst. [að sjálfsögðu] Íþróttaeinkunnin mín var afar hætt komin þegar ég missti þetta orð hugsunarlaust út úr mér nú í vor. En þannig var mál með vexti að ég mætti íþróttakennaranum á göngum skólans og ákvað sú gamla að upplagt væri að nýta tímann meðan við gengum (upp stigann) til samræðna. Ég átti því ekki annarra kosta völ en að gera mitt besta hvað það varðaði. Hún hóf samtalið á: Jæja gekk ekki bara vel í prófunum? (vorprófunum sem sagt) og ég sagði nú bara jújú, þá sagði hún: jhá! Duglegu fólki gengur vel! (eða eikkað álíka heilnæmt og sálfræðilegt) Ég vissi nú ekki alleg hvernig ég átti að svara þessara heimspeki en sagði: Já að sjálfsögðu! Það var þó heldur betur illa hugsað af mér og fékk ég að heyra langa ræðu um að þa væri sko ekkert sjálfsagt, með tilheyrandi heimspekilegum orðaforða og stingandi augnráði. Þetta fór svo illa í hana að ég er viss um að hún hefði gengið niður hurðina á íþróttaskrifstofunni, án þess að taka eftir því, ef hún hefði ekki verið opin!

_____________________________________________________________
p.s. If you where worried then Kevin and I have solved all our problemes. We have decided to give up bowling and dancing and go fishing together instead
...and Kev' honey you know nothing happend with that pilot...



Comments:

Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?