<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, júlí 19, 2004

                       ...Frelsið er yndislegt ég geri það sem ég vil....
           ...Skyldi maður verða leiður á því til lengdar að vera til....
 
Þessi helgi er búin að vera æðisleg svo ekki sé meira sagt! Endalaust gott veður og almenn gleði hvarvetna.  Í dag fórum við Aldís niður á austurvöll og höfðum þa gott með ís í hendinni og sól í augunum, sem var bara ansi "útlandslegt" og við því í góðum fíling og ekki fannst okkur nú leiðilegt þegar 5000 menn fuku á okkur. Og var Aldís ekki lengi að grípa 5000 kallinn og kaupa handa okkur ís :)
Á Austurvelli voru flestir hinir hressustu og skemmtu margir sér við að horfa á e-h skrítinn  mann sýna listir sínar með keðjusög og sígarettum...
Innan bráðar bættust Vala, Hildur, Katla, Ómar og Sölvi í hópinn og brostu með okkur. 
________________________________________________________
 
Ladies! Ladies, you know it doesn't have to be money! (H)
 




Comments:

Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?