<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, febrúar 11, 2004

Omg er ekki bara komin miðvikudagur. Þetta líður svo gríðarlega fljótt að marh ræður bara ekki neitt við neitt.
�rshátíðin bara á morgun + vetrarfrí, heilir 2 dagar, mikill lúxus og við erum að tala um að í næstu viku er jarðfræði-,stærðfræði-og efnafræðipróf + ritgerð í dönsku og íslensku. Svo vetrarfríið verður bara notað í sólstrandarferðir og önnur notalegheit !!
En aftur að árshátíðinni, í dag fengum við falleg **glös u.þ.b. 6m í þvermál eða svo frá framtíðinni svo ekki mun okkur vanta vatnsílát einnig fengum við nýstárlega inngöngumiða á ballið að venju, þó ekki hafi verið neinir pýramídar í þetta skipti. Morgundagurinn byrjar sem sagt á morgunpartý-i upp í hafnarfirði þar sem allt skemmtilegt verður gert svo bregður marh sér í háskólabíó og horfir á skemmtidagskrá. Að því loknu skundar fólk þangað sem það vill fara en hittist svo á Aski og borðar y/indislegan kvölverð við kertaljós. (annaðhvort eða) Svo liggur leiðin í fyrirpartý sem verður skammt frá. Að öllu þessu loknu verður svo dansað inn á Broadway, gengið inn og dansinum haldið áfram. Legg ég því til að allir gefi sér smá tíma til æfingar á árshátíðardansinum en það mun að öllum líkindum gefa dansinum fallega silkiáferð ef vel tekst til.

Comments:

Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?