<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, febrúar 23, 2004

Hallló !!
Nú er ég aldeilis búin að vera kröftug í blogginu!! hah!! Ég stefni sko á ólypmpíuleikana á Hawai í mars nú í ár svo efnileg þyki ég :)
Það hefur margt skemmtilegt gerst síðan þarna 11 febrúar og líka annað sem var alls kostar ekkert skemmtilegt bara. Er ég þá að tala um harmleikinn sem átti sér stað í Borgarfirðinum síðasta föstudag. Sem mér finnst mjög sorglegt svo ekki sé meira sagt.
En jámm það hefur þó margt skemmtilegt átt sér stað sem hægt er að gleðjast yfir.
Til dæmis hin undursamlega ritsmíði sem ég hef rétt nýlokið við og finnst alleg bráðnauðsynlegt að skella nokkrum gullmolum hingað :)

-Þar að auki er ég þeim kostum gædd að vera mikill hlaupagarpur og er sjón mín svo skörp sem arnarauga. Ég ætti því ekki að eiga í teljanlegum vandræðum með að hljálpa gömlum hjónum að setja upp sólbekkinn sinn, koma auga á mann í lífsháska og þeysast þvert yfir stöndina honum til bjargar, allt í senn.

-Svo ekki sé minnst á að tæki ég að mér sjóbrettakennslu sem hlutastarf, sæi ég ankannalegt fólk taka sína fyrstu dýfu inn í sjóbrettaheiminn sem er án efa stórkostlega upplifun.

-Ég hef ekki kynnt mér hverjir tekjumöguleikarnir eru en býst ekki við að hafa efni á strandhóteli fyrr en á þrítugsaldrinum.

Comments:

Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?