<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, desember 20, 2003

Omg! �sland er alltaf að verða hættulegra og hættulegra, fyrir utan það að strætóbílstjórar og gamalt fólk er með e-h áráttu fyrir að koma í veg fyrir að mar komist heim til sín virðast Breiðmenn (Breiðholtsbúar) vera farnir að stofna ættbálka hér í nálægð við Nesið!! Og því fylgir að sjálfsögðu hættulegt fólk sem töltir út í búð með riffil undir hendinni, eins og ekkert væri sjálfsagðara. Eða sko ég var sem sé í þessu húsi, á mörkum Seltjarnarness og Reykjavíkur þegar þessi óttaslegna kona kemur hjá og spyr hvort heimilisfaðirinn sé heima...svo var ekki...Þá varð henni litið mjög hugsi á svip niður að sjó, " ææ ok ég nebblega var sko, eða sko það liggur e-h þarna niður í fjöru!!" segir konan svo....En fyrst heimilisfaðirinn var ekki heima fór hún sína leið og stuttu seinna er bara kominn sjúkrabíll og fullt af köllum með vasaljós út um allt í svarta myrkrið sem ríkti...Svo ég er audda búin að sjá fyrir mér að þarna hafi verið e-h svakalegt í gangi þetta var eflaust e-h illræmdur Breiðmaður sem ekki hefur verið tekinn í sátt hér í æðri manna byggð!!

Comments:

Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?